Filed under: Pólitík
Nú hefur staðið yfir endurskoðun á fjárhagsáætlun Reykjvíkurborgar með það að markmiði að ná enn ferkari hagræðingu, enn meiri niðurskurði.
Í borgarráði í morgun voru lögð fram drög að þessari endurskoðun. Þar er eitt og annað lagt til sem veldur áhyggjum. Við fulltrúar minnihlutans bókuðum þannig:
Bókun Vinstri grænna og Samfylkingar um endurskoðun fjárhagsáætlunar
Minnihlutinn tekur undir þakkir til starfsfólks og fagnar því að betri tími verði gefin til að fara yfir hugmyndir og gögn málsins.
Sérstök ástæða er til að fara yfir útfærslu niðurskurðar í skólastarfi þar sem fyrir liggur að það kennslumagn sem undir liggur jafngildir um 70 stöðugildum eða um það bil 14 kennsluvikum hjá börnum í 2.-4.bekk. Jafnframt er gert ráð fyrir skerðingu á þjónustu frístundaheimilanna sem kemur beint niður á sömu börnum.
Þá er sérstök ástæða til að lýsa efasemdum um niðurskurð um 225 milljónir í viðhaldsframkvæmdum og 40 milljóna frestun viðhaldsframkvæmda í liðnum götum, gönguleiðum og opnum svæðum. Þetta er þvert á tillögugerð minnihlutans um átak í mannaflsfrekum viðhaldsverkefnum og getur varla talist skynsamleg forgangsröðun í núverandi atvinnuástandi.
2 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
Einfaldlega er borgin að færa börn heim til sín í auknum mæli. Ætli það rími ekki við aukið atvinnuleysi. Hins vegar sýnist mér hún vera að ýta undir óheillavænlegan spíral þar sem þessi ráðstöfun eykur á atvinnuleysi frekar heldur en hitt, að það spari fé til lengri tíma.
Comment af Carlos Ferrer mars 12, 2009 @ 21:14Mér þykir einnig mikil vanefni í þeirri óheillastefnu að skera niður viðhaldsframkvæmdum. Allar rannsóknir hafa sýnt að það fyrsta sem skorið er niður í þrengingum er viðhald. Slíkur sparnaður er gríðarlega dýr þegar fram í sækir, oft breytist þá viðhald í endurnýjun með tilheyrandi kostnaði.
Comment af Gunnar mars 13, 2009 @ 11:37